Fimm greindust með kórónuveirusmit á landamærunum í gær. Tveir þeirra bíða niðurstöðu mótefnamælingar. Eitt smit greindist innanlands í gær og var viðkomandi í sóttkví.
Af landamærasmitunum greindist eitt í fyrri skimun en tvö í seinni skimun. Einn var með mótefni en tveir bíða eins og áður sagði niðurstöðu mótefnamælingar og ekki ljóst á þessari stundu hvort þau eru virk.
Alls voru tekin 652 sýni á landamærunum í gær en 512 innanlands.
Alls eru 98 í einangrun vegna Covid-19 á Íslandi í dag og hefur fækkað um fimm frá því á föstudag. Börnum með smit hefur fækkað undanfarið og eru nú alls 22 börn með veiruna.
Þrjú smit eru meðal barna á aldrinum 1-5 ára, 17 smit eru á meðal barna á aldrinum 6-12 ára og tvö í aldurshópnum 13-17 ára.
Í aldurshópnum 18-29 ára eru 18 smit. 28 smit eru í aldurshópnum 30-39 ára. 21 smit er í aldurshópnum 40-49 ára. Fimm smit eru í aldurshópnum 50-59 ára, eitt meðal fólks á sjötugsaldri og þrír á áttræðisaldri eru með Covid-19.
Nú eru 128 í sóttkví sem er fjölgun frá því fyrir helgi er 111 voru í sóttkví. Á föstudag og laugardag greindust alls þrír með Covid-19 innanlands og af þeim voru tveir utan sóttkvíar. Í skimunarsóttkví eru 1.637.
Núna eru 77 í einangrun á höfuðborgarsvæðinu. Þrír eru í einangrun á Suðurnesjum og 13 á Suðurlandi. Tvö smit eru á Austurlandi, eitt á Norðurlandi eystra og tvö á Vesturlandi.
104 eru í sóttkví á höfuðborgarsvæðinu, 12 á Suðurnesjum, 7 á Suðurlandi og tveir á Austurlandi. Einn er í sóttkví á Norðurlandi vestra og einn á Vesturlandi. Einn er óstaðsettur í hús.
Nýgengi smita innanlands á hverja 100 þúsund íbúa er nú 18 síðustu tvær vikur og 5,7 á landamærunum.