Fipaðist og keyrði á hótel

Erlendur ferðamaður sem ætlaði að leggja bifreið við hótel í Vestur-Skaftafellssýslu varð fyrir óskemmtilegri reynslu þegar hann fipaðist sem varð til þess að hann keyrði á hótelið.

Steig ferðamaðurinn á bensíngjöf bílsins í stað bremsu og lenti bifreiðin á húsvegg hótelsins. Brotnaði rúða í hótelinu auk þess sem klæðning skemmdist, en engin slys urðu á fólki. Greint er frá þessu í vikuyfirliti lögreglunnar á Suðurlandi.

Þrjú önnur umferðarslys urðu í síðustu viku í umdæmi lögreglunnar, en öll voru þau án alvarlegra meiðsla.

Lögreglan kærði 45 ökumenn fyrir að aka of hratt í umdæminu í síðustu viku, en 32 þeirra voru í Árnessýslu. Af þessum 45 voru 16 sem óku á meira en 30 km/klst yfir hámarkshraða og sá sem hraðast ók var á 138 km/klst hraða þar sem hámarkshraðinn er 90 km/klst.

Þá kærði lögreglan þrjá ökumenn fyrir að nota farsíma án handfrjáls búnaðar við akstur, en 40 þúsund króna sekt er við slíku broti.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert