Samið um endurhæfingu eftir samningsleysi í 3 ár

Heilbrigðisráðherra hefur staðfest samning um endurhæfingu hjarta- og lungnasjúklinga.
Heilbrigðisráðherra hefur staðfest samning um endurhæfingu hjarta- og lungnasjúklinga. mbl.is/Árni Sæberg

Heilbrigðisráðherra hefur staðfest samning milli Sjúkratrygginga Íslands og HL-stöðvarinnar í Reykjavík um endurhæfingu hjarta- og lungnasjúklinga eftir þriggja ára samningsleysi.

Fram kemur í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins að samningurinn, sem kveður á um sérhæfða endurhæfingu, sé „gerður í framhaldi af eldri samningi frá árinu 2017 og gildir til 31. mars 2022“. Fyrri samningur rann út árið 2019 og hefur starfsemin verið rekin síðastliðin þrjú ár á forsendum eldri samningsins. Sama hefur átt við samning við HL-stöðina á Akureyri.

Gert er ráð fyrir að árlegur kostnaður við samninginn sé um 60 milljónir króna en endurhæfingin sem um ræðir felst í þjálfun sjúklinga undir eftirliti, auk fræðslu og ráðgjöf sjúkraþjálfara og lækna.

Svandís Svavarsdóttir.
Svandís Svavarsdóttir. mbl.is/Arnþór

„Endurhæfing á að vera ríkur þáttur í heilbrigðisþjónustu við landsmenn því um mikilvægi hennar verður ekki deilt. Fyrst og fremst er hún mikilvæg fyrir einstaklinga sem njóta hennar til að endurheimta eða auka færni í kjölfar sjúkdóma eða annarra áfalla eða til að fyrirbyggja færniskerðingu eftir því sem það á við,“ er haft eftir Svandísi Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra í tilkynningunni.

„Þessi afstaða til mikilvægis endurhæfingar endurspeglast í aðgerðaáætlun um endurhæfingu til fimm ára sem ég kynnti í lok síðasta árs. Ég fagna þessum samningi,“ segir Svandís.

HL-stöðin er sjálfseignarstofnun sem stofnuð var árið 1989 af Landssamtökum hjartasjúklinga, Sambandi íslenskra berklasjúklinga og Hjartavernd.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert