20 manna fjöldatakmörkun verður hér á landi samkvæmt nýjum sóttvarnareglum. Íþróttir verða heimilar fyrir alla. Þar á meðal verða sundlaugar og líkamsræktarstöðvar opnaðar á nýjan leik.
Þetta sagði Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra fyrir utan ráðherrabústaðinn að loknum ríkisstjórnarfundi.
„Við erum að leggja til tilslakanir innanlands á sóttvarnaaðgerðum. Það er í samræmi við það sem við vildum sjá þegar við tókum hressilega í handbremsuna fyrir þremur vikum,“ sagði Svandís.
Heimiluð verða 50% af þeim fjölda sem er venjulega heimilaður í sundlaugum og á líkamsræktarstöðvum.
Óbreyttar reglur verða í skólum nema að fjarlægðarreglan fer niður í einn metra.
Krár mega vera opnar til klukkan 21 á kvöldin og klukkan 22 þarf að vera búið að rýma húsnæðið.
Í sviðslistum mega 50 manns vera á sviði og 100 í hólfum.
Nánari upplýsingar um breyttar sóttvarnareglur má finna á vef stjórnarráðsins.
Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir skilaði Svandísi minnisblaði með tillögum að sóttvarnaaðgerðum næstu vikna í gær. Ný reglugerð mun taka gildi á fimmtudaginn.
Í samtali við mbl.is sagðist hann vona að hægt yrði að slaka á aðgerðum.
Þrjú smit greindust innanlands í gær og voru allir þeir sem greindust utan sóttkvíar.