Heilbrigðisráðherra segir að Hafnista beri ábyrgð á sínum eigin rekstri og þurfi að uppfylla þá samninga sem rekstraraðilinn hafi skrifað undir. Ríkið, fyrirtæki í velferðarþjónustu og sveitarfélögin hafa þó unnið að því að skoða rekstrargrunn hjúkrunarheimilanna og telur heilbrigðisráðherra tilefni til að endurmeta þann grunn.
Eins og mbl.is greindi frá um helgina sagði Hrafnista nýverið upp á fjórða tug starfsmanna. María Fjóla Harðardóttir, forstjóri Hrafnistuheimilanna, sagði í samtali við mbl.is um helgina að uppsagnirnar endurspegli erfið rekstrarskilyrði heimilanna, sem rekin eru með þjónustusamningi við ríkið. Einingarverð, sem fylgir hverjum íbúa, dugi ekki til að standa undir kjarasamningsbundnum launahækkunum starfsfólks og óljóst hvernig verði með styttingu vinnuvikunnar.
Skilur þú þessar áhyggjur og uppsagnir?
„Ég ætla ekki að setja mig inn í einstakar ákvarðanir en ég hef alltaf sagt það að ég hef væntingar til þess að við getum stigið einhver skref í áttina að því að treysta þennan grunn betur eftir því sem við höfum betri gögn,“ segir Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra í samtali við mbl.is.
„Hrafnista ber ábyrgð á sínum rekstri og þarf að uppfylla tiltekna samninga sem rekstraraðilar hafa skrifað undir. Hins vegar höfum við verið í sameiginlegri vinnu, bæði fyrirtæki í velferðarþjónustu, sveitarfélögin og ríkið, í því að skoða rekstrargrunn hjúkrunarheimilanna og ég held að við séum öll samstíga í því að það er fullt tilefni til þess að endurmeta þann grunn,“ segir Svandís.
Hún telur að miklu máli skipti að rekstur hjúkrunarheimila byggi á samningum „þar sem er alveg klárt hvað það er sem ríkið er að fá fyrir fjármagnið og við séum með svona samræmd greiðslumódel bæði fyrir opinbert kerfi og einkaaðila. Með þeim hætti fær almenningur trausta þjónustu fyrir það fjármagn sem við erum að leggja til úr ríkissjóði.“