Ingvar Árni Ingvarsson var í gær dæmdur í Héraðsdómi Reykjavíkur í níu mánaða fangelsi fyrir hættulega árás með skammbyssu. Hleypti hann af Ruger-skammbyssu út um glugga á heimili sínu í átt að tveimur mönnum sem leituðu skjóls á bílastæði fyrir utan heimili Ingvars.
Árásin átti sér stað að morgni laugardagsins 9. mars 2019. Þá var Ingvar einnig ákærður fyrir fíkniefnalagabrot fyrir að hafa haft í vörslum sínum 214,8 grömm af amfetamíni, 26,63 grömm af kókaíni, 2,42 grömm af alsælu og 62 millilítra af testósteron-stungulyfi. Á heimilinu fundust jafnframt íblöndunarefni og lyf.
Þá fundust á heimili Ingvars afsöguð haglabyssa og skammbyssa auk 56 haglaskota og 22 tómar patrónur en lögreglan fann og haldlagði vopnin við húsleit í maí 2018.
Málið var meðal annars rannsakað sem meint tilraun til manndráps og sætti Ingvar gæsluvarðhaldi á tímabili frá 9. mars 2019 til 27. sama mánaðar við rannsókn málsins.
Ingvar Árni á að baki langan sakaferil. Var hann meðal þeirra sem voru dæmdir í stóra fíkniefnamálinu svokallaða frá árinu 2000. Þá var hann dæmdur í fyrra í 60 daga fangelsi fyrir hótanir og fleira.
Ingvar Árni var dæmdur í tveggja ára fangelsi árið 2011 fyrir að hafa árið 2009 haldið sambýliskonu sinni nauðugri, slegið hana svo hún féll fram af svölum, hótun og tilraun til fjárkúgunar.