Ný sprunga sem myndaðist á gossvæðinu í Geldingadölum í morgun er innan skilgreinds hættusvæðis en almannavarnir og vísindamenn funduðu vegna eldsumbrotanna á Reykjanesi í morgun.
Rögnvaldur Ólafsson aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá almannavörnum segir að áfram gjósi í sömu línunni. Svæðið sé allt þversprungið og kvikan leiti einfaldlega að auðveldustu leiðinni upp.
Skilgreinda hættusvæðið er þar sem fólk getur verið í bráðri hættu vegna skyndilegra atburða sem geta orðið á gosstöðvum. Innan hættusvæðisins er allra mesta hættan á opnun fleiri gossprungna án fyrirvara og því getur fylgt skyndilegt og hratt hraunflæði sem erfitt er að forðast. Utan þessa svæðis eru einnig aðrar hættur sem fylgja framrás hrauns og uppsöfnunar gass.
Rögnvaldur segir atburði morgunsins ekki breyta neinu um aðgengi fólks að gosstöðvunum í dag. Svæðið er vaktað af lögreglu og björgunarsveitum frá hádegi til miðnættis. Lokað er inn á svæðið klukkan 21.00 í kvöld, rýming hefst tveimur klukkustundum síðar og verður lokið fyrir miðnætti.
Rögnvaldur segir enn fremur að áfram megi búast við því að frekari sprungur myndist, innan þess ramma sem sérfræðingar hafi skilgreint. „Við gefum öðrum svæðum auga líka en við fáum borgað fyrir að vera svartsýn og reiknum alltaf með einhverju óvæntu. Náttúran ræður hérna á Íslandi.“
Börnum, öldruðum, barnshafandi konum og þeim sem hafa undirliggjandi hjarta- og lungnasjúkdóma er ráðið frá því að fara á gosstöðvarnar ef einhver loftmengun er yfirvofandi. Einnig getur verið yfirborðsmengun í jarðvegi, snjó og yfirborðsvatni vegna þungmálma og uppsöfnunar flúors (F). Yfirborðsmengun er mest í næsta nágrenni við gosstöðina.
Í dag er útlit fyrir sunnan 3-8 m/s og berst þá gasmengunin til norðurs, einkum yfir Vatnsleysuströnd og gæti þar náð styrk sem er óhollur fyrir viðkvæma.