Segja rannsókn ekki í samræmi við loforð

Konurnar sem vistaðar voru á Laugalandi segja rannsókn ekki í …
Konurnar sem vistaðar voru á Laugalandi segja rannsókn ekki í samræmi við gefin loforð. mbl.is/Ófeigur

Konur sem vistaðar voru á meðferðarheimilinu Laugalandi á árunum 1997 til 2007 segja rannsókn á því hvort þær hafi sætt illri meðferð, andlegu og líkamlegu ofbeldi ekki í neinu samræmi við þau loforð sem þeim voru gefin.

„Okkur líður eins og rannsókn málsins sé ekki gerð af neinni alvöru eða hafi forgang,“ segir í yfirlýsingu frá konunum.

19. febrúar síðastliðinn samþykkti ríkisstjórnin tillögu Ásmundar Einars Daðasonar, félags- og barnamálaráðherra, um að rannsaka hvort að konurnar sem vistaðar voru á Laugalandi, áður Varpholti, hefðu sætt illri meðferð, andlegu eða líkamlegu ofbeldi. Þá var Gæða- og eftirlitsstofnun félagsþjónustu og barnaverndar (GEF) falið að rannsaka málið. 

Upplifðu loksins að á þær væri hlustað

„Við fögnuðum niðurstöðunni og við upplifðum að loksins var á okkur hlustað eftir áralanga þöggun, yfirhylmingu og aðgerðarleysi yfirvalda gagnvart okkur, segir í yfirlýsingunni.“ 

Nú tveimur mánuðum síðar hafa konurnar enn ekkert heyrt frá GEF að frátöldu svari við einum tölvupósti.

Í svari stofnunarinnar til blaðamanns Stundarinnar kom fram að vinna væri ekki hafin við að rannsaka mál kvennanna og að stofnunin myndi sinna rannsókninni samhliða öðrum verkefnum.

„Það er reiðarslag fyrir okkur sem höfum staðið í þessari baráttu, séð okkur knúnar til þess að fara með mjög persónuleg mál fram fyrir alþjóð í þeirri von að á okkur verði hlustað, okkur trúað og að við fáum það ofbeldi sem við máttum sæta viðurkennt. Það slær okkur að GEF eigi að  sinna rannsókninni samhliða mörgum öðrum verkefnum. Ef miðað er við fyrri mál þar sem starfshættir svipaðra heimila voru rannsakaðir má ætla að rannsóknin verði umfangsmikil,“ segir í yfirlýsingunni.

Gætu haft samband hvenær sem er

Fyrir samþykki ríkistjórnarinnar, 19. febrúar, höfðu konurnar átt tvo fundi með Ásmundi þar sem Ásmundur tók sérstaklega fram að þær gætu haft samband við sig eða Sóleyju Ragnarsdóttur, aðstoðarmann hans, hvenær sem væri í þessu ferli og óskað eftir fundi eða upplýsingum.

25. mars síðastliðinn sendi Gígja Skúladóttir tölvupóst fyrir hönd kvennanna til Ásmundar og Sóleyjar þar sem þær óskuðu eftir fundi vegna þess að þær höfðu áhyggjur af framgangi mála. Nú 19 dögum síðar hefur þeim tölvupósti enn ekki verið svarað.

Konurnar óska eftir því að ríkisstjórnin framfylgi því sem hún samþykkti þann 19. febrúar, að hún rannsaki mál þeirra af alvöru og sjái til þess að rannsóknin verði sett í forgang en mæti ekki afgangi.

„Við óskum einnig eftir því að upplýsingum varðandi rannsóknina verði komið til skila til okkar enda er um að ræða viðkvæm og persónuleg mál sem varða okkur,“ segir að lokum í yfirlýsingunni. Undir hana rita:

Alexandra Magnúsdóttir
Ásta Önnudóttur
Brynja Skúladóttir 
Gígja Skúladóttir 
Gyða Dögg Jónsdóttir
Harpa Særós Magnúsdóttir
Hrafnhildur Jóhannesdóttir
Katrín Alexandra
Kolbrún Þorsteinsdóttir
María Ás Birgisdóttir 
Teresa Dröfn Freysdóttir Njarðvík
Tinna Pálsdóttir

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert