Þrír greindust með kórónuveiruna innanlands í gær og einn er á sjúkrahúsi vegna Covid-19. Alls eru 93 í einangrun og 147 í sóttkví. Í skimunarsóttkví eru 1.269. Allir þeir sem greindust með smit innanlands voru utan sóttkvíar.
Alls voru tekin 679 sýni á landamærunum í gær en 983 innanlands.
Á landamærunum greindust þrír við fyrri skimun og einn í seinni skimun. Tveir bíða niðurstöðu mótefnamælingar og einn var með mótefni. Í gær var greint frá fimm smitum á landamærunum en að tveir þeirra biðu niðurstöðu mótefnamælingar. Hún leiddi í ljós að þeir voru báðir með mótefni.
Nýgengi smita innanlands á hverja 100 þúsund íbúa er nú 16,1 síðustu tvær vikur og 6 á landamærunum.
Þrjú smit eru meðal barna á aldrinum 1-5 ára, 16 smit eru á meðal barna á aldrinum 6-12 ára og tvö í aldurshópnum 13-17 ára.
Í aldurshópnum 18-29 ára eru 18 smit, 26 smit eru í aldurshópnum 30-39 ára, 19 smit eru í aldurshópnum 40-49 ára, fjögur smit eru í aldurshópnum 50-59 ára, tvö meðal fólks á sjötugsaldri og þrír á áttræðisaldri eru með Covid-19.