Fleiri vilja verða kennarar

Fleiri sækja um kennaranám en áður þökk sé aðgerðum stjórnvalda, …
Fleiri sækja um kennaranám en áður þökk sé aðgerðum stjórnvalda, segir á vef Stjórnarráðsins. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Umsóknum í kennaranám hefur fjölgað umtalsvert eftir að stjórnvöld keyrðu af stað átaksverkefni til þess að auka við aðsókn í greinina. Segir frá þessu í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins.

Fjórir háskólar bjóða nú upp á fjölbreytt kennaranám og nýjasta viðbótin er svokallað MT-nám, þar sem nemendur ljúka námi með verkefnaskilum í stað lokaritgerðar.

Í átaksverkefninu fólust meðal annars hvatningarstyrkir sem geta numið allt að 800.000 krónum að ákveðnum skilyrðum uppfylltum, fyrir kennaranema á lokaári meistaranáms en sami hópur á nú einnig möguleika á að velja launað starfsnám í leik- og grunnskólum. 

Þá geta starfandi kennarar sem sérhæfa sig í starfstengdri leiðsögn og kennsluráðgjöf einnig sótt um hvatningarstyrk sem getur numið allt að 150.000 krónum að uppfylltum skilyrðum en leiðsagnakennarar veita kennaranemum og nýútskrifuðum kennurum faglega leiðsögn og stuðning í starf.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert