Í ljósi veðurspár fyrir morgundaginn hefur lögreglustjórinn á Suðurnesjum ákveðið að gossvæðið verði lokað á morgun. Veðurspáin hljóðar upp á suðaustan hvassviðri og úrhellisrigningu.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurnesjum.
Þar segir að við veðuraðstæður eins og búast má við á morgun verði allar leiðir, hvort heldur er gönguleiðir eða neyðarvegur viðbragðsaðila eitt forarsvað.
Því geti reynst erfitt fyrir viðbragðsaðila að bregðast við útköllum og sinna eftirliti á svæðinu.