Innganga í Evrópusmbandið er ekki sjálfstætt markmið en er stórt skref í átt að mörgum markmiðum sem þingmenn allra flokka berjast fyrir. Þetta kom fram í máli Jóns Steindórs Valdimarssonar, þingmanns Viðreisnar, en á stefnuskrá flokksins eru áframhaldandi aðildarviðræður Íslands í sambandið.
Þingflokkur Viðreisnar hefur lagt fram þingsályktunartillögu um endurupptöku viðræðna um aðild að Evrópusambandinu.
„Með inngöngu í Evrópusambandið og upptöku evru fylgir langþráður gengisstöðugleiki. Hann mun gera rekstur á Íslandi blómlegri með auknum fyrirsjáanleika og lægri vöxtum. Hann mun gera verðtrygginguna óþarfa fyrir heimili landsins. Hann mun lækka kostnað heimilanna við matarkörfuna,“ sagði Jón Steindór á Alþingi í dag.
Enn fremur sagði hann að innganga gerði okkur kleift að takast á við vandamál sem eru of stór fyrir einstök ríki að glíma við og nefndi þar sér í lagi loftslagsbreytingar.
„Þar er haldið vel utan um hagsmuni smárra fyrirtækja og stuðning við nýsköpun. Stöðugra gengi styður líka við hagvöxt og hagvöxtur er lykillinn okkar að því að stíga út úr yfirstandandi heimskreppu án þess að þurfa að grípa til verulegs niðurskurðar og skattahækkana. Þetta vitum við allt saman vel. Listinn er langur yfir kosti þess að ganga í Evrópusambandið,“ sagði Jón Steindór og hélt áfram:
„Nærtækt er núna að nefna hvar við stæðum í öflun bóluefna ef við nytum ekki skjóls Evrópusambandsins og svarið blasir auðvitað við: Mun verr. Þess vegna er innganga í Evrópusambandið ekki sjálfstætt markmið en hún er vegurinn okkar að bættum lífsgæðum og fjölþættri lausn við mörgum stórum vandamálum.“