Þriggja ára fangelsi fyrir fjölda brota

Héraðsdómur Reykjavíkur.
Héraðsdómur Reykjavíkur. Ljósmynd/Þór

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt karlmann í þriggja ára fangelsi vegna fjölda brota sem honum voru gefin að sök í tveimur ákærum. Málin voru sameinuð í þinghaldi í febrúar 2020.

Í fyrri ákærunni var maðurinn sakaður um níu mismunandi brot á rúmlega níu mánaða tímabili, í langflestum tilfellum fyrir að aka bifreið sviptur ökuréttindum undir áhrifum áfengis, lyfja eða hvors tveggja.

Í seinni ákærunni var hann sakaður um skjalabrot vegna falsaðrar skráningarmerkingar á bifreið og fyrir að stela bifreið við veitingastaðinn Domino´s í Skeifunni og aka henni sviptur ökuréttindum og undir áhrifum áfengis í Garðabæ. Hann sinnti ekki stöðvunarmerkjum lögreglu og nam hann ekki staðar fyrr en annarri lögreglubifreið hafði verið ekið þvert á Hnoðraholtsbraut.

Maðurinn, sem á að baki sakaferil aftur til ársins 2013, játaði skýlaust brot sín fyrir dómi. Auk þriggja ára fangelsis var hann sviptur ökuréttindum ævilangt og gert að greiða málsvarnarþóknun verjanda síns og annan sakarkostnað, samtals upp á tæpar 1,2 milljónir króna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert