Einn er í einangrun vegna smits á Austurlandi er kemur fram í tilkynningu frá aðgerðastjórn á Austurlandi. Um er að ræða gamalt landamærasmit en sá sýkti kom til landsins fyrir um þremur vikum, ásamt 25 manna hópi með Norrænu og er enn lasinn.
Frá þessu er greint á Facebook-síðu aðgerðarstjórnar á Austurlandi.
Í samtali við mbl.is segir Kristján Ólafur Guðnason, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Austurlandi að ekki sé neitt samfélagslegt smit í fjórðungnum eins og staðan er núna. Einu smitin sem komið hafa upp í lengri tíma hafa verið landamærasmit sem tekist hefur að einangra.
Fjörtíu farþegar komu með Norrænu til Seyðisfjarðar með Norrænu í gærmorgun. Allir komufarþegar fóru í sýnatöku og fengu leiðbeiningar um sóttkví í framhaldinu. Þrír þáðu boð um gistingu í farsóttarhúsi á Hallormsstað.
Sjá má stöðuuppfærslu Lögreglunnar á Austurlandi þar sem farið er yfir Covid-19 tengd málefni fjórðungsins hér:
Tilkynning frá aðgerðastjórn á Austurlandi, – COVID-19 Einn er í einangrun vegna smits á Austurlandi. Um landamærasmit...
Posted by Lögreglan á Austurlandi on Wednesday, 14 April 2021