Um 70 nemendur Menntaskólans við Hamrahlíð sem voru sendir í úrvinnslusóttkví vegna smits sem kom upp hjá kennara við skólann fara í skimun á morgun og á föstudaginn.
Eftir það kemur í ljós hvort einhver þeirra hefur smitast af kórónuveirunni, að sögn Steins Jóhannssonar, rektors MH.
„Það voru allir að virða fjarlægðarmörk og voru með grímur. Kennarinn var tvo metra frá nemendum, þannig að ég vona að það verði engin frekari smit,“ segir Steinn.
Kennarinn fann fyrir einkennum á sunnudagskvöld og fór í skimun morguninn eftir. Hann kennir þremur hópum í skólanum og var ákveðið að senda þá alla í sóttkví.