Lögreglan á Suðurnesjum varar við slæmu veðri á gosstöðvunum þar sem vindhviður hafa mælst hátt í 41 m/s en vindur þar mælist nú 18 m/s, samkvæmt mælingum veðurstöðvar á Fagradalsfjalli.
Útlit er fyrir betra veður á morgun en þá er spáð 13 m/s og þriggja gráðu hita. Um helgina er einnig útlit fyrir sæmilegt veður, þar sem hitinn helst í þremur gráðum en vindur verður á bilinu 11 til 14 m/s.
Á mánudag fer vindurinn niður í 9 m/s og á þriðjudag 7 m/s og fjögurra gráðu hita en rigning í kortunum.
Samkvæmt veðurstöð á Fagradalsfjalli er ansi slæmt veður á gos stöðvunum, eins og sjá má þá er 19 m/s og vindhviður fara...
Posted by Lögreglan á Suðurnesjum on Thursday, 15 April 2021