Landsvirkjun greiðir 6,34 milljarða króna í arð til íslenska ríkisins fyrir árið 2020 samkvæmt samþykkt eigenda á aðalfundi félagsins. Kemur þetta fram í tilkynningu frá félaginu.
Á aðalfundi skipaði fjármála- og efnahagsráðherra einnig í stjórn Landsvirkjunar samkvæmt lögum um fyrirtækið en engar breytingar voru gerðar á skipan stjórnar frá fyrra starfsári.
Stjórnina skipa því enn þau Jónas Þór Guðmundsson, formaður, Álfheiður Ingadóttir, varaformaður, Jón Björn Hákonarson, Guðfinna Jóhanna Guðmundsdóttir og Gunnar Tryggvason.