Tíu ára barn missti stjórn á rafskútu með þeim afleiðingum að rafskútan keyrði með barnið út á götu svo litlu munaði að bifreið, sem ökumaður keyrði á 50 km/klst., væri ekið á barnið. Greinir lögreglan á Norðurlandi eystra frá þessu á Facebook-síðu sinni.
Biður hún foreldra að ræða við börn sín um hættur vegna farartækjanna og aldurstakmark á notkun þeirra en samkvæmt reglum rafskútufyrirtækisins sem átti í hlut verða notendur að vera 18 ára eða eldri.
Var barnið við gangbraut á Akureyri þegar það gat ekki valdið hjólinu að fullu vegna stærðar og þyngdar, svo hjólið fór af stað og togaði barnið út á götuna. Segir lögreglan í færslu að litlu hafi munað að bifreið væri ekið á barnið.
„Vegfarendur sem þetta sáu var mikið niðri fyrir vegna þessa atviks og í áfalli,“ segir í færslu lögreglunnar.
Komið þið sæl lesendur góðir. Nú ætlum við að beina orðum okkar til foreldra og forráðamanna barna. Nú í dag barst...
Posted by Lögreglan á Norðurlandi eystra on Thursday, 15 April 2021