Undanfarna daga hefur verið fallegt vorveður á höfuðborgarsvæðinu. Hafflöturinn í gömlu höfninni við slippinn í Reykjavík var spegilsléttur í gær.
Veðurspár benda hins vegar til vætutíðar næstu daga og einna helst að veðrið verði skaplegt norðaustanlands um helgina.