Í kvöld kemur í ljós hvaða auglýsingar og markaðsherferðir sköruðu fram úr á síðasta ári þegar Lúðurinn fer fram í beinni útsendingu hér á mbl.is. Þau Villi Neto og Björk Guðmundsdóttir kynna hátíðina sem er haldin í 35. skipti í ár.
Það eru ÍMARK, samtök íslensks markaðsfólks, í samráði við Samband íslenskra auglýsingastofa (SÍA), sem standa að verðlaununum en fulltrúar fjölda fyrirtækja koma og kynna verðlaunahafa kvöldsins. Hátíðin ber keim af samkomutakmörkunum í þjóðfélaginu en eftirvæntingin fyrir þessari uppskeruhátíð geirans er ávallt mikil.
Þrátt fyrir ástandið hefur það hvorki bitnað á fjölda innsendinga né gæðum í framleiddu auglýsingaefni. Innsendingar til Íslensku auglýsingaverðlaunanna hófu að berast í upphafi þessa árs og rann frestur út 19. janúar síðastliðinn. Við tók ferli dómnefndar sem skipuð er fagfólki úr bransanum sem kappkostaði að fara yfir 320 innsendingar sem bárust í 15 flokkum og eru 70 innsendingar tilnefndar til Lúðurs.