Matvælastofnun varar við neyslu á Husk Psyllium Froskaller og Husk Psyllium Mavebalance trefjahylkjum og -dufti frá fyrirtækinu Orkla Care, en salmonella hefur greinst í vörunum og má rekja þrjú dauðsföll og fjölda sýkinga í Danmörku til neyslu varanna.
Að því er fram kemur í tilkynningu frá MAST segir að stofnunin og heilbrigðiseftirlit sveitarfélaga vinni áfram að öflun upplýsinga um dreifingu til Íslands, en vörurnar hafa verið fluttar til landsins og eru meðal annars fáanlegar í apótekum. Innköllun stendur yfir á öllum lotum, en full dreifing liggur ekki fyrir á þessari stundu. Nánari upplýsingar verða birtar um leið og þær liggja fyrir.
Áður hafði verið greint frá því að innköllun næði ekki til Íslands.