Samningur um hönnun bílakjallara

Undir Sóleyjartorgi við Nýja Landspítalann kemur bílakjallari.
Undir Sóleyjartorgi við Nýja Landspítalann kemur bílakjallari. Tölvuteikning/Corpus 3

Skrifað hefur verið undir samning á milli Nýja Landspítalans, Verkís, Batterísins og T.ark um fullnaðarhönnun á bílakjallara við nýjan Landspítala.

Bílakjallarinn mun rísa undir Sóleyjartorgi, austan við meðferðarkjarna og sunnan við Gamla Spítala, segir í tilkynningu frá Nýja Landspítalanum.

Bílakjallarinn er hugsaður eingöngu sem þjónustustæði fyrir ökutæki sjúklinga, aðstandenda og gesta spítalans. Um er að ræða 200 bílastæði og má líkja honum við bílakjallarann í Hörpu sem er á tveimur hæðum. Gengið verður beint inn í sjúkrahúsið úr bílakjallaranum í sjálfvirka stiga, lyftur eða göngustiga. Þess má geta að einnig verður byggt á svæðinu 550 stæða bílastæðahús.

Forhönnun bílakjallarans liggur fyrir og verklok eru áætluð í byrjun árs 2022. Gert er ráð fyrir að uppsteypa kjallarans sé samhliða uppsteypu meðferðarkjarnans og uppsteypunni sé að fullu lokið 2023.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert