Jóhann Ólafsson
Fimm starfsmenn og sex börn í leikskólanum Jörfa í Hæðargarði greindust með Covid-19 í gær og bættust þá við tíu starfsmenn og eitt barn sem áður hafði greinst smitað.
Þetta staðfestir Helgi Grímsson, sviðsstjóri skóla- og frístundasviðs hjá Reykjavíkurborg, í samtali við mbl.is.
Hann segir enn fremur að ekki sé búið að skima alla á leikskólanum.
Leikskólinn verður lokaður út vikuna hið minnsta enda allir nemendur og starfsfólk í sóttkví.
Fjölskyldur þeirra barna sem eru í sóttkví eru það sömuleiðis og því hefur hópsmitið áhrif á systkini smitaðra barna sem eru í öðrum leikskólum eða grunnskólum.