Leikskólinn Álfheimar á Selfossi verður lokaður á morgun eftir að kórónuveirusmit kom upp hjá starfsmanni þar.
Á facebooksíðu sveitarfélagsins Árborgar kemur fram að allir starfsmenn Álfheima verði sendir í kórónuveirupróf.
Þar kemur einnig fram að börn á leikskólanum muni þurfa að fara í sóttkví vegna þessa. Nánari upplýsingar til foreldra þeirra barna sem þurfa að fara í sóttkví muni verða sendar út eins fljótt og auðið er.
Leikskólinn Álfheimar verður lokaður þriðjudaginn 20. apríl vegna smits sem kom upp í starfmannahópnum. Starfmenn...
Posted by Sveitarfélagið Árborg on Monday, April 19, 2021