16 Covid-flutningar

Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins hafði í nægu að snúast síðasta sólarhringinn en alls voru sjúkraflutningarnir 134 talsins. Þar voru 16 sjúkraflutningar tengdir Covid-19.

Að sögn varðstjóra var aftur á móti lítið um forgangsflutninga. Slökkviliðið sinnti tveimur útköllum á dælubíla en í öðru tilvikinu var um umferðarslys að ræða og í hinu minni háttar eld.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert