Smitin í leikskólanum Jörfa eru rakin til einstaklings sem fór óvarlega í sóttkví og sinnti ekki einangrun. Maðurinn er nú í sóttvarnahúsi og hefur verið þar síðan 12. apríl eftir að héraðsdómari féllst á kröfu sóttvarnalæknis um að manninum yrði gert að dvelja þar í einangrun. Guðmundur Pétur Guðmundsson, lögreglufulltrúi hjá embætti lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, staðfestir það í samtali við mbl.is.
Samkvæmt því sem Jóhann Björn Skúlason, yfirmaður smitrakningarteymis almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra og embættis landlæknis, sagði í samtali við blaðamann mbl.is fyrr í vikunni eru tvö afbrigði af kórónuveirunni ráðandi í þeim smitum sem hafa verið greind hér á landi undanfarna daga. Um er að ræða tvö afbrigði veirunnar sem fyrst greindist í Bretlandi. Í báðum tilvikum tengjast smitin einstaklingum sem komu hingað til lands.
Smitið á Jörfa tengist einstaklingi sem kom til landsins skömmu fyrir mánaðamót en viðkomandi starfar ekki á leikskólanum heldur einstaklingur sem fór óvarlega með þessum afleiðingum – að yfir 100 fjölskyldur eru í sóttkví og mörg smit. Nú eru á annað hundrað fjölskyldur í sóttkví vegna smitaðs barns í Álftamýrarskóla en það smit er rakið til Jörfa. Jafnframt þurftu 50 nemendur og starfsmenn Sæmundarskóla að fara í sóttkví vegna smits sem rakið er til leikskólans.
Guðmundur Pétur staðfestir að viðkomandi einstaklingur hafi kært úrskurð en héraðsdómari fallist á kröfugerð sóttvarnalæknis um að maðurinn ætti að vistast í einangrun í sóttvarnahúsi.
Málið kom til kasta lögreglunnar 8. apríl en lögreglan hefur ekki nákvæmar upplýsingar um hvenær maðurinn kom til landsins en hann er Pólverji búsettur hér á landi.
Maðurinn hefur ekki verið yfirheyrður vegna málsins þar sem hann er veikur af Covid-19 og í einangrun og sóttvarnabrot hans ekki komin til ákærusviðs lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.
Samkvæmt heimildum mbl.is er sá, sem talinn er hafa farið óvarlega í sóttkví og smit tengd fiskvinnslunni Íslensku sjávarfangi má rekja til, í einangrun og hefur verið það allt frá því hann greindist smitaður af Covid-19.