Síðasti sólarhringur var mjög annasamur hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins. Boðanir á sjúkrabíla voru 153 talsins. Af þeim var 31 boðun vegna forgangsverkefna og 10 verkefna sem tengd voru Covid-19.
„Auk þess voru þó nokkrir sjúkraflutningar á heilbrigðisstofnanir utan höfuðborgarsvæðisins en eins og gefur að skilja taka þeir flutningar talsvert lengri tíma,“ segir í Facebook-færslu slökkviliðsins.
Góðan dag og gleðilegt sumar. Síðasti sólarhringur var mjög annasamur hjá okkur en boðanir á sjúkrabíla voru 153 en af...
Posted by Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins bs. on Miðvikudagur, 21. apríl 2021