Frumvarp heilbrigðisráðherra um sóttvarnalög og lög um útlendinga var samþykkt um klukkan hálffimm í morgun, með 28 atkvæðum gegn tveimur. Á meðal þeirra sem greiddu atkvæði gegn frumvarpinu var stjórnarþingmaðurinn Sigríður Á. Andersen. 22 sátu hjá og 11 voru fjarverandi.
Lögin heimila ráðherra frá og með deginum í dag, 22. apríl, og til 30. júní nk. að skylda ferðamenn sem koma frá eða hafa dvalið á hááhættusvæðum eða svæðum sem fullnægjandi upplýsingar liggja ekki fyrir um til að sæta sinni sóttkví eða einangrun í sóttvarnahúsi.
„Sóttvarnalækni er heimilt að veita undanþágu frá þessari skyldu sýni ferðamaður með fullnægjandi hætti fram á að hann muni uppfylla öll skilyrði sóttkvíar eða einangrunar í húsnæði á eigin vegum,“ segir í nýsamþykktum lögum.
Frumvarpið var samþykkt með breytingartillögu minnihlutans en fjórir af fimm stjórnarþingmönnum í velferðarnefnd undirrituðu minnihlutaálitið. Tillagan inniheldur breytingar á orðalagi og gefur ráðherra umboð til þess að skilgreina hááhættusvæði að fenginni tillögu sóttvarnalæknis.