Bólusetningar með bóluefni Janssen hefjast hér á landi eins fljótt og hægt er en fyrr í vikunni barst niðurstaða frá Lyfjastofnun Evrópu (EMA) þess efnis að hægt verði að nota bóluefni Janssen, sem hafði verið til skoðunar vegna mögulegra tengsla bóluefnisins við sjaldgæfa tegund blóðtappa.
Ísland hefur gert samninga um kaup á 235.000 skömmtum af efninu. Ólíkt öðrum efnum þarf einungis eina sprautu, ekki tvær, til að teljast fullbólusettur. Nú þegar eru 2.400 skammtar af bóluefninu í geymslu hér á landi.
„Það er mjög stór vika í næstu viku þar sem rúmlega 20 þúsund verða bólsettir á landinu. Nákvæmlega hvenær Janssen bóluefnið verður sett í notkun er ekki vitað en við munum byrja að nota það eins fljótt og hægt er,“ segir Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir.
Þórólfur segir að bóluefnið verði í boði fyrir alla aldurshópa og því ekki gefið ákveðnum hópum eins og bóluefni AstraZeneca.
„Tölur um aukaverkanir eru lágar og áhættan lítil og ég tel ekki ástæðu til að fara með þetta eins og bóluefni AstraZeneca,“ segir Þórólfur.