Alls greindust 10 með kórónuveiruna innanlands í gær. Af þeim voru níu í sóttkví.
812 eru í sóttkví en stórir hópar gætu losnað úr sóttkví síðar í dag þar sem börn og starfsfólk unglingastigs Álftamýrarskóla fer í seinni skimun í dag og hið sama á við um starfsfólk og börn á leikskólanum Jörfa. Nú eru 134 í einangrun og 1.106 í skimunarsóttkví.
Á landamærunum greindist eitt smit við fyrri skimun og einn bíður niðurstöðu mótefnamælingar. Daginn áður voru fimm með mótefni við Covid-19 og einn bíður enn niðurstöðu mótefnamælingar.
Í gær var tekið 1.051 sýni innanlands og 679 á landamærunum.
Fjórir eru á sjúkrahúsi og hefur fjölgað um einn á milli daga.
Nýgengi innanlandssmita heldur áfram að hækka og er nú 31,1 en 5,5 á landamærunum. Þar er miðað við á hverja 100 þúsund íbúa síðustu tvær vikurnar.
Alls eru 43 börn í einangrun með kórónuveiruna á Íslandi í dag. Eitt barn á fyrsta ári er með smit, 26 smit eru meðal barna á aldrinum 1-5 ára, 12 smit eru á meðal barna á aldrinum 6-12 ára og fjögur í aldurshópnum 13-17 ára.
Í aldurshópnum 18-29 ára eru 19 smit, 22 smit eru í aldurshópnum 30-39 ára, 19 smit eru í aldurshópnum 40-49 ára, 20 smit eru í aldurshópnum 50-59 ára, níu meðal fólks á sjötugsaldri og tveir á áttræðisaldri eru með Covid-19.
Fréttin verður uppfærð