Aðalmeðferð hefst í Héraðsdómi Reykjavíkur í fyrramálið í máli karlmanns á sjötugsaldri sem er ákærður fyrir að hafa kveikt í húsi á Bræðraborgarstíg síðasta sumar með þeim afleiðingum að þrír létust.
Teknir hafa verið frá fjórir dagar fyrir aðalmeðferðina í héraðsdómi, sem sýnir vel umfang málsins.
Fyrirtaka í málinu var um miðjan síðasta mánuð og þar hafnaði dómari kröfu verjanda mannsins um að dómþing færi fram fyrir luktum dyrum. Ákæruvaldið hyggst kalla 35 vitni fyrir dóminn.
Maðurinn neitaði sök um manndráp og íkveikju við þingfestingu málsins síðasta haust.
Þrír geðlæknar hafa metið manninn ósakhæfan og staðfestu þeir þar með fyrra mat geðlækna.
Í ákærunni er maðurinn sagður hafa kveikt eld á gólfi í herbergi sínu á annarri hæð, á tveimur stöðum á gólfi í sameiginlegu rými á sömu hæð og undir stiga sem sem lá upp á þriðju hæð hússins.
Í ákærunni kemur jafnframt fram að þegar hann hafi kveikt eldinn hafi 13 manns verið í húsinu og var húsið orðið nær alelda þegar slökkvistarf hófst.
Þrjú létust í brunanum, 24 ára kona, 21 árs karlmaður og 26 ára kona. Kemur fram í ákærunni að þau tvö fyrrnefndu hafi látist af völdum koloxíðeitrunar við innöndun á reyk, en hin konan látist þegar hún féll niður af þriðju hæð þegar hún reyndi að flýja eldinn.