Tólf í framboði í forvali VG í Reykjavík

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra og Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra sækjast eftir fyrsta …
Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra og Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra sækjast eftir fyrsta sætinu í Reykjavíkurkjördæmum suður og norður. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Tólf verða í framboði í forvali Vinstri grænna í Reykjavík sem verður dagana 16. til 19. maí.

Í forvalinu verður kosið í efstu fjögur sætin á  framboðslistum Vinstri grænna til Alþingis í Reykjavíkurkjördæmum suður og norður.

Frambjóðendur bjóða sig því fram í tiltekið sæti í öðru hvoru kjördæmanna, að því er segir í tilkynningu.

Eftirfarandi framboð bárust:

Andrés Skúlason verkefnastjóri, í 2. sæti.

Brynhildur Björnsdóttir, blaðamaður, bókarýnir og söngkona, í 4. sæti.

Daníel E. Arnarson, framkvæmdastjóri Samtakanna '78, í 2. sæti.

Elva Hrönn Hjartardóttir, sérfræðingur hjá VR, í 2. sæti.

Eva Dögg Davíðsdóttir, doktorsnemi í umhverfis- og þróunarfræði, í 3.-4. sæti.

Guy Conan Stewart kennari, í 4. sæti.

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra, í 1. sæti.

Kolbeinn Óttarsson Proppé alþingismaður, í 2. sæti.

Orri Páll Jóhannsson, aðstoðarmaður umhverfis- og auðlindaráðherra og varaþingmaður, í 2. sæti.

René Biasone, sérfræðingur hjá Umhverfisstofnun, í 4. sæti.

Steinunn Þóra Árnadóttir alþingismaður, í 2. sæti.

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra, í 1. sæti.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert