Á morgun (27. apríl) tekur gildi reglugerð sem bannar ónauðsynleg ferðalög frá tilgreindum áhættusvæðum vegna kórónuveirufaraldursins. Reglugerðin sem Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra gefur út mun gilda út maímánuð, að því er fram kemur í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins.
Þar segir að „til og með 31. maí 2021 er útlendingum, sem koma frá eða dvalið hafa í meira en sólarhring á síðastliðnum 14 dögum á svæði þar sem 14 daga nýgengi smita er yfir 700 á hverja 100.000 íbúa eða fullnægjandi upplýsingar liggja ekki fyrir um svæðið, óheimilt að koma til landsins“. Þá gildir bannið jafnt fyrir alla jafnvel þótt þeir séu ríkisborgarar EES-ríkja eða EFTA-ríkja.
Bannið nær ekki til útlendinga sem hafa fasta búsetu hérlendis eða „aðstandendur íslenskra ríkisborgara og útlendinga sem búsettir eru hér á landi, útlendinga sem eru í nánu parasambandi, sem staðið hefur um lengri tíma, með íslenskum ríkisborgara eða útlendingi sem er löglega búsettur hér á landi, útlendinga sem geta framvísað vottorði um bólusetningu eða vottorði um að COVID-19 sýking sé afstaðin“.
Þá nær umrætt bann heldur ekki til farþega í tengiflugi, starfsfólks á sviði heilbrigðisþjónustu og öldrunarþjónustu, starfsfólks sem sinnir flutningum á vöru og þjónustu, einstaklinga sem hafa þörf á alþjóðlegri vernd, einstaklinga sem þurfa að ferðast vegna brýnna aðstæðna í fjölskyldu sinni, námsmanna og einstaklinga sem þurfa nauðsynlega að ferðast vegna viðskipta eða starfa sem eru þess eðlis að þau er ekki hægt að framkvæma síðar eða erlendis.
Jafnframt eru undanþegnir banninu einstaklingar og sendinefndir sem koma til landsins á vegum íslenskra stjórnvalda, starfsmenn sendiskrifstofa og aðrir fulltrúar erlendra ríkja, starfsmenn alþjóðastofnana og einstaklinga í boði þeirra sem þurfa að koma til landsins vegna starfsemi þessara stofnana, fulltrúar herliðs og starfsmenn sem sinna mannúðaraðstoð og almannavörnum og fjölskyldur framangreindra aðila.