Nemendur sex bekkja í sóttkví

Barnaskólinn á Eyrarbakka og Stokkseyri.
Barnaskólinn á Eyrarbakka og Stokkseyri. Af vef Barnaskólans á Eyrarbakka og Stokkseyri

Nemandi við Barnaskólann á Eyrarbakka og Stokkseyri hefur greinst með Covid-19 og eru öll börn í 1.-6. bekk skólans komin í sóttkví.

Þetta kemur fram í bréfi frá skólastjóra Barnaskólans, Páli Sveinssyni, á vef skólans í gærkvöldi, sunnudagskvöld.

Nemandinn var síðast í skólanum þriðjudaginn 20. apríl en var ekki greindur með Covid fyrr en laugardaginn 24. apríl.

„Þetta þýðir að það er krafa smitrakningarteymis almannavarna og sóttvarnalæknis að öll börn í 1. – 6. bekk Barnaskólans á Eyrarbakka og Stokkseyri eigi að fara í sóttkví frá og með 25.04. 2021 til og með 27.04.2021 þar sem þau voru útsett fyrir smiti vegna Covid-19 veirunnar,“ segir á vef skólans.

Skólastarf fellur því niður mánudag og þriðjudag á yngra stigi. Nemendur á yngra stigi fara í sýnatöku þriðjudaginn 27. apríl og geta mætt í skólann daginn eftir ef neikvæð niðurstaða liggur fyrir.

„Ef ungt barn er sett í sóttkví er nauðsynlegt að fullorðinn einstaklingur fari í sóttkví með barninu. Vakin er athygli á að allir heimilismeðlimir þurfa að fara í sóttkví.

Samkvæmt verklagi smitrakningarteymis þá er einungis barnið skráð formlega í sóttkví en forráðamaður sem er með barninu í sóttkví og aðrir heimilismeðlimir eru ekki skráð í sóttkví. Heimilismeðlimir geta skráð sig sjálfir í sóttkví á vefsíðunni heilsuvera.is.

Barnið fær boð í sýnatöku á sjöunda degi en ekki forráðamaður eða aðrir heimilismeðlimir sem eru með barninu í sóttkví. Aftur á móti ef heimilismeðlimir fá einkenni þá skal óska eftir sýnatöku á vefsíðunni heilsuvera.is eða hringja í sína heilsugæslu ef viðkomandi hefur ekki aðgang að síðunni. Rétt er að minna á að heimilismeðlimir eiga að geta fengið vottorð um sóttkví í gegnum heilsuveru til staðfestingar fjarveru frá vinnu,“ segir á vef Barnaskólans á Eyrarbakka og Stokkseyri.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert