Margar hendur að störfum í Flatey

Steypuvinna við nýju slökkvistöðina.
Steypuvinna við nýju slökkvistöðina. Ljósmynd/MG

Flateyingar létu margar hendur standa fram úr ermum um helgina. Kirkjan var þrifin hátt og lágt og kirkjustígurinn stunginn upp og möl borin í hann.

Á fimmtudag var hafist handa við að taka grunn slökkvistöðvar í Flatey og síðan tók við mótauppsláttur og steypuvinna.

Að loknu góðu dagsverki á laugardag var safnast saman í Bryggjubúðinni í Frystihúsinu þar sem samheldni og sumri var fagnað. aij@mbl.is

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert