Sólin farin að láta sjá sig á höfuðborgarsvæðinu

mbl.is/Kristinn Magnússon

Margir nýttu tækifærið og kíktu út í veðurblíðuna í gær. Ljóst er að styttast fer í sumarið og voru þessi ungmenni ekki lengi að svara kallinu og skella sér út í góða veðrið.

Veðurspáin lítur vel út á höfuðborgarsvæðinu í dag en spáð er átta gráða hita og sól í Reykjavík.

Áfram verður léttskýjað á morgun en skýjað með köflum vestantil og lítilsháttar súld síðdegis, að því er fram kemr í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert