Guðlaugur ræddi við Blinken á símafundi

Antony Blinken er utanríkisráðherra Bandaríkjanna og senn væntanlegur til Íslands.
Antony Blinken er utanríkisráðherra Bandaríkjanna og senn væntanlegur til Íslands. JACQUELYN MARTIN

Ráðherrafundur norðurskautsráðsins og gagnkvæmt samstarf á alþjóðavettvangi Íslands og Bandaríkjanna voru til umræðu á símafundi sem Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra og Anthony Blinken, bandarískur starfsbróðir hans, áttu í dag. 


Anthony Blinken tilkynnti nýlega að hann myndi leiða sendinefnd Bandaríkjanna á ráðherrafundi norðurskautsráðsins sem haldinn verður í Reykjavík 20. maí. Í samtali sínu í dag ræddu þeir Guðlaugur Þór um fyrirhugaða heimsókn Blinkens hingað til lands og hvers vænta megi af fundi  og starfi norðurskautsráðsins. 

Tvíhliða samskipti Íslands og Bandaríkjanna voru einnig til umræðu en í ár eru áttatíu ár liðin frá því þau tóku upp formlegt stjórnmálasamband. Þá eru sjötíu ár frá undirritun varnarsamnings milli ríkjanna. Eins hafa samskipti á sviði efnahagsmála verið að aukast, sbr. efnahagssamráð frá 2019.

„Fyrirhuguð heimsókn Tony Blinken hingað til lands sýnir ekki aðeins áhuga nýrrar ríkisstjórnar í Bandaríkjunum á norðurskautsráðinu heldur einnig vilja hennar til að halda áfram þeirri góðu samvinnu sem Ísland og Bandaríkin hafa átt um árabil. Slíkar heimsóknir veita mikilvægt tækifæri til að efla tengsl ríkjanna enn frekar, þeim báðum til hagsbóta,“ segir Guðlaugur Þór Þórðarson, skv. tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu. Ráðherrarnir ræddu jafnframt öryggis- og varnarsamstarf, mannréttindi og loftslagsmál. 

Guðlaugur Þór Þórðarson er utanríkisráðherra Íslendinga.
Guðlaugur Þór Þórðarson er utanríkisráðherra Íslendinga. mbl.is/Kristinn Magnússon
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert