Helga Guðrún tók við hvatningarverðlaunum

Helga Guðrún Gunnarsdóttir og Ármann Kr. Ólafsson við afhendingu Hvatningarverðlauna …
Helga Guðrún Gunnarsdóttir og Ármann Kr. Ólafsson við afhendingu Hvatningarverðlauna Kópavogs í dag. Ljósmynd/Aðsend

Í dag voru Hvatningarverðlaun Kópavogs 2021 veitt í fyrsta sinn og þau hlaut Ræs ehf. Fyrirtækið er eigu Helgu Guðrúnar Gunnarsdóttur og býður upp á þjálfun í vatni með áherslu á að þjóna fólki sem er komið á og yfir miðjan aldur. Þetta eykur verulega valmöguleika í heilsueflingu, segir í tilkynningu. 

Námskeið Helgu Guðrúnar í Sundlaug Kópavogs hafa notið mikilla vinsælda. Ármann Kr. Ólafsson bæjarstjóri Kópavogs afhenti Helgu Guðrúnu viðurkenningu og blóm í blíðskaparveðri á sundlaugarbakkanum við fögnuð þátttakenda.

Hugmyndin með verðlaununum er að veita viðurkenningu fyrirtæki í Kópavogi sem hefur með starfsemi sinni stuðlað að heilsueflingu Kópavogsbúa.

„Hvatningarverðlaun Kópavogs eru mikilvægur hluti af innleiðingu lýðheilsustefnu bæjarins. Auglýst var eftir tilnefningum fyrr á þessu ári og var samdóma álit dómnefndar, sem skipuð var stýrihópi lýðheilsumála í Kópavogi, að veita Ræs ehf. verðlaunin,“ segir í frétt frá Kópavogsbæ.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert