Laugardagurinn 1. maí er lögboðinn frídagur á Íslandi og þann dag eru Vínbúðirnar lokaðar. Þetta kemur fram á vef ÁTVR.
„Við bendum viðskiptavinum á að kynna sér afgreiðslutímann áður en lagt er af stað og einnig er vert að kynna sér hvernig álag dreifist á búðirnar. Almennt er minna að gera fyrri part vikunnar og fyrri part dagsins,“ segir í tilkynningunni.