Níu greindust með kórónuveirusmit innanlands í gær. Sjö voru í sóttkví en tveir utan sóttkvíar við greiningu í gær. Átta þeirra greindust við einkennasýnatöku en einn við sóttkvíarskimun. Nú eru 183 í einangrun og 408 í sóttkví. Ekki hefur fjölgað á sjúkrahúsi en þar eru fjórir líkt og í gær.
Á Suðurlandi hefur fjölgað um sex með staðfest smit þar sem í gær voru þar 23 í einangrun en eru nú 29 talsins.
Alls voru tekin 1.864 sýni innanlands í gær og 493 á landamærunum.
Ekkert smit greindist á landamærunum í gær en þeir tveir sem biðu mótefnamælingar í gær voru báðir með Covid-19 smit. Um var að ræða fyrri skimun hjá þeim báðum. Alls eru 1.053 í skimunarsóttkví og hefur þeim fjölgað á milli daga.
Nýgengi smita innanlands síðustu 14 daga á hverja 100 þúsund íbúa er nú 45,5 og 4,4 á landamærunum.
Alls eru 56 börn í einangrun með kórónuveiruna á Íslandi í dag og eru smitin flest meðal barna á leikskólaaldri. Eitt barn á fyrsta ári er með smit, 36 smit eru meðal barna á aldrinum 1-5 ára, 15 smit eru á meðal barna á aldrinum 6-12 ára og fjögur í aldurshópnum 13-17 ára.
Í aldurshópnum 18-29 ára eru 25 smit, 34 smit er í aldurshópnum 30-39 ára, 33 smit eru í aldurshópnum 40-49 ára, 23 smit eru í aldurshópnum 50-59 ára, 10 meðal fólks á sjötugsaldri og tveir á áttræðisaldri eru með Covid-19.