Viðamiklar aðgerðir gegn stafrænu ofbeldi gegn börnum og ungmennum voru kynntar í dag á fundi hjá ríkislögreglustjóra.
Úrbætur innan lögreglunnar, ákæruvaldsins og dómskerfisins, fræðsla og forvarnir fyrir ólíka aldurshópa og aðstoð við að koma máli fórnarlamba í skýran farveg eru helstu aðgerðirnar sem ráðist verður í, að því er kemur fram í tilkynningu.
Tillögurnar koma frá aðgerðateymi gegn ofbeldi sem sett var á fót í maí 2020 af Ásmundi Einari Daðasyni, félags- og barnamálaráðherra, og Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur dómsmálaráðherra. Teymið er skipað þeim Eygló Harðardóttur og Sigríði Björk Guðjónsdóttur ríkislögreglustjóra og hefur María Rún Bjarnadóttir lögfræðingur verið ráðin til þess að leiða verkefnið á skrifstofu ríkislögreglustjóra.
Hér má nálgast upptöku frá fundinum
Fræðsla og forvarnir eru ein mikilvægasta aðgerðin að mati hópsins og ráðist verður í vitundarvakningu um stafrænt ofbeldi þar sem athyglinni verður sérstaklega beint að gerendum. Samstarf verður haft við frjáls félagasamtök, félög og stofnanir um þátttöku í vitundarvakningunni. Þátttaka lögreglu í forvarnastarfi gegn stafrænu ofbeldi verður einnig aukin og þá hyggst lögreglan vera í nánara samstarfi við alla þá sem sinna þjónustu við börn.
Stafrænt ofbeldi getur birst með margvíslegum hætti, til að mynda með hótunum um dreifingu nektarmynda eða heimildarlausu rafrænu eftirliti. Helstu upplýsingar um hvað beri að gera þegar einhver verður fyrir stafrænu ofbeldi eru í dag aðgengilegar á vef Neyðarlínunnar, 112.is, en þar verður bætt við fleiri gagnlegum upplýsingum, bæði fyrir þolendur og gerendur.
Að mati aðgerðateymisins hafa kærur og dómsmál sem snúa að stafrænu ofbeldi og kynferðislegri friðhelgi oft ekki verið unnin nægilega markvisst innan kerfsins og/eða að rannsókn þeirra hefur tekið of langan tíma. Þetta vill aðgerðateymið laga með því að:
Að lokum leggur aðgerðahópurinn til að auka verulega aðgengi fórnarlamba stafræns ofbeldis að ráðgjöf ýmiss konar sérfræðinga sem geti hjálpað þeim að takast á við afleiðingar ofbeldisins og skilja meðferð þess í kerfinu.
„Stafrænt ofbeldi fer vaxandi og er því miður fylgisfiskur aukinnar netnotkunar, ekki síst hjá börnum og unglingum og má segja að þetta sé ein af skuggahliðum tækniþróunarinnar. Stafrænt ofbeldi getur haft mjög alvarlegar afleiðingar og haft áhrif á brotaþola út ævina. Ég er því sérstaklega ánægður að sjá þetta verkefni verða að veruleika þar sem við ætlum að ráðast á vandann frá öllum hliðum,“ segir Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra, í tilkynningunni.
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra bætir við: „Í vetur flutti ég frumvarp um stafrænt ofbeldi sem nú er orðið að lögum. Lögin skapa ramma fyrir frekari árangur í baráttu gegn stafrænu ofbeldi, en forvarnir og þekking þeirra sem að málum koma skipta ekki síður máli. Ég fagna þessu átaki enda ber okkur að berjast gegn öllu ofbeldi í hvaða mynd sem það birtist,“ segir hún.