Greiðfært er á flestum leiðum, þó eru hálkublettir á nokkrum fjallvegum á vestan- og norðanverðu landinu.
Þæfingsfærð er á Mjóafjarðarheiði. Akstursbann er í gildi á fjölmörgum hálendisvegum á meðan frost er að fara úr jörðu að því er segir á vef Vegagerðarinnar.