Kostir bólusetningar eru tvíþættir, annars vegar er um einstaklingsbundna vernd vegna Covid-19 að ræða og hins vegar næst hjarðónæmi gegn veirunni með bólusetningu þorra landsmanna. Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir segir vel koma til greina að bólusetja tilviljanakennt eftir að forgangshópar hafa að minnsta kosti fengið fyrri sprautuna.
Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, sagði á blaðamannafundi í gær að líklega væri best að breyta um stefnu í bólusetningum hér á landi þegar búið verður að bólusetja alla yfir 60 ára aldri. Þá verður jafnvel skynsamlegt að bólusetja yngri fyrst eða bólusetja af handahófi.
„Þegar við erum búin að ná þessum hópum sem eru skilgreindir í reglugerðinni förum við út í almenning,“ segir Þórólfur og heldur áfram:
„Þá þurfum við að skoða hvort við förum í tilviljanakennt úrtak þar; förum þá ekki endilega eftir aldri heldur boðum holt og bolt í bólusetninguna,“ segir Þórólfur. „Það kemur sterklega til greina að gera það.“
Hann býst við áframhaldandi góðum gangi í bólusetningum og segir engan hiksta í afhendingu þeirra. Því geti landsmenn verið vongóðir um að bólusetningar muni halda áfram af svipuðum krafti og síðustu daga og vikur.