Skapi störf og styrki bótakerfið

Drífa Snædal, forseti ASÍ.
Drífa Snædal, forseti ASÍ. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Enn og aftur þarf að vinda ofan af þeirri hugmynd að hækkun ráðstöfunartekna búi til verðbólgu ein og sér. Þvert á móti eru það tekjur fólks sem halda hagkerfinu hér gangandi eins og hægt er. Þarna hefur orðið viðsnúningur í viðhorfum frá síðustu kreppu og hver alþjóðastofnunin á fætur annarri sendir ríkisstjórnum skýr skilaboð: „Verjið afkomuna!“

Þetta kemur fram í pistli Drífu Snædal, forseta ASÍ. Hún segir Alþýðusambandið hafa lagt ofuráherslu á að hækka bætur og verja afkomu í kórónukreppunni en stjórnvöld kynntu í hádeginu nýjar og framlengdar aðgerðir vegna hennar.

„Það eru því vonbrigði að tekjutengda tímabil atvinnuleysisbóta sé ekki lengt enn frekar og bætur hækkaðar þrátt fyrir að allar spár geri ráð fyrir áframhaldandi atvinnuleysi. Ljósi punkturinn í aðgerðunum er áhersla á að skapa störf og höfum við ekki legið á liði okkar að hvetja stjórnvöld til dáða þar en það þarf að gera þetta jafnhliða; búa til ný störf og styrkja bótakerfið,“ skrifar Drífa.

Á morgun, 1. maí, er baráttudagur verkalýðsins en annað árið í röð verða engar kröfugöngur vegna kórónuveirunnar. Drífa brýnir félaga og segir verkalýðsfélög langt því frá sátt um skiptingu gæða í samfélaginu og eftir því sem auðfólki vex fiskur um hrygg dýpki gjáin.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert