Uppsetning 180 fermetra risaskjás vegna stærsta rafíþróttamóts sem haldið hefur verið á Íslandi gengur mjög vel að sögn Birgis Bárðarsonar, framkvæmdastjóra Íþrótta- og sýningahallarinnar, sem heldur utan um viðburðahald í Laugardalshöllinni þar sem mótið fer fram.
Skjárinn er í tveimur hlutum, stendur úti á miðju gólfi í höllinni og mun sýna tilþrif heimsins bestu leikmanna tölvuleikjanna League of Legends og Valerant. Um er að ræða heimsmeistaramót í leikjunum tveimur og mun það hefjast núna um miðjan maí.
„Það horfa fleiri á þetta í beinni útsendingu en horfa á SuperBowl og Eurovision,“ segir Birgir við mbl.is.
„Það sem er í raun merkilegast við þetta er hversu mikið tækifæri þetta er fyrir Ísland til framtíðar að fá að halda svona mót.“
Greint var frá því fyrir skemmstu á mbl.is að bólusetningar við Covid-19 hjá Heilsugæslunni á höfuðborgarsvæðinu muni færast í stóra salinn í Laugardalshöll á næstunni. Að sögn Birgis mun mótið ekki hafa áhrif á bólusetningar í Laugardalshöll heldur verður bólusetning algjörlega aðskilin rafíþróttamótinu.
Birgir segir einnig að fjölmargir starfsmenn komi að framkvæmd mótsins og að 70% þeirra komi utan úr heimi. Framkvæmd mótsins er gríðarlega umfangsmikil og flókin og segir Birgir að þetta sé mun stærra í sniðum en hvaða tónleikar sem áður hafa verið haldnir í Laugardalshöll.