„Veður var gott á leiðinni í nótt en ansi kalt en leiðangurinn lagði af stað klukkan ellefu í gærkvöldi. Útsýnið var stórkostlegt þegar fyrsta lína komst á tindinn,“ sagði Auður fyrir skömmu þegar fyrsti hópur var að búa sig undir að leggja af stað niður af Hnúknum.
Konurnar, sem ætla að toppa Hnúkinn til þess að safna fyrir nýrri krabbameinsdeild sem meðal annars styrkir skjólstæðinga styrktarfélaganna LÍF og Krafts, eru 126 talsins. Um er að ræða sögulega stund þar sem aldrei hafa jafn margar konur gengið upp á hæsta tind landsins samtímis.
Nú þegar eru tæplega 30 konur komnar upp á topp og eru fyrstu hóparnir á leiðinni niður. Að sögn Soffíu S. Sigurgeirsdóttur, eins leiðangursstjóra, er virkilega góð stemmning í hópnum og veðrið fullkomið. Konurnar höfðu frestað göngunni um sólarhring vegna veðurs á laugardag og segir Soffía að þær séu ánægðar með að hafa gert það vegna þess að í dag sé ekki skýjahnoðri á himni.
Soffía hvetur landsmenn til þess að styrkja verkefnið, hver einasta króna skipti máli í þessum efnum. Öll áheit renna óskert til krabbameinsdeildar Landspítala.
Hægt er að styrkja söfnunina með því að leggja inn á reikning 1161-26-9900, kt. 501219-0290, eða með því að senda á símanúmerið 789-4010 í AUR-appinu.
Einnig er mögulegt að styðja við Lífskraft með því að senda SMS í símanúmerið 1900