Eigandi Íslandsbankahússins á Kirkjusandi vill flýta niðurrifi hússins enda fari ástand þess hratt versnandi. Sem kunnugt er af fréttum hefur húsið verið dæmt ónýtt vegna myglu.
Í erindi sem Jónas Þór Jónasson sjóðsstjóri Íslandssjóða hefur sent skipulagsfulltrúa Reykjavíkur kemur fram að ástand byggingarinnar versni með hverjum mánuðinum. Þá beri í vaxandi mæli á skemmdarverkum og innbrotum í húsið. Það hafi leitt til þess að börn í hverfinu slysist inn í húsið og geti það orðið hættulegt heilsu þeirra. Byggingin er jafnframt lýti fyrir nágrannana og borgarbúa alla, segir Jónas.
Nýtt deiliskipulag hefur verið unnið fyrir reitinn undanfarin tvö ár í samvinnu lóðarhafa og Reykjavíkurborgar. Fram kemur í bréfi Jónasar Þórs að nú sé unnið að fínstillingu þeirrar tillögu, að því er fram kemur í Morgunblaðinu í dag.