Willum Þór Þórsson, þingmaður Framsóknarflokksins, hreppti fyrsta sætið í prófkjöri flokksins sem fór fram um helgina og lauk í gær. Hlaut hann 308 atkvæði i fyrsta sæti.
Willum gaf einn kost á sér í fyrsta sæti, en Linda Hrönn Þórisdóttir, stjórnandi hjá Barnaheillum og Ágúst Bjarni Garðarsson formaður bæjarráðs Hafnarfjarðar, sóttust eftir öðru sætinu. Ágúst hreppti annað sætið, en Linda náði ekki í efstu fimm sætin.
Heildarniðurstaða prófkjörsins var eftirfarandi:
1. sæti, Willum Þór Þórsson alþingismaður. Hann fékk 308 atkvæði í 1. sæti.
2. sæti, Ágúst Bjarni Garðarsson, form. bæjarráðs. Hann fékk 262 atkvæði í 1.-2. sæti.
3. sæti, Anna Karen Svövudóttir, þýðandi og samskiptaráðgjafi hjá heilbrigðisráðuneytinu. Hún fékk 226 atkvæði í 1.–3. sæti.
4. sæti, Kristín Hermannsdóttir háskólanemi. Hún fékk 198 atkvæði í 1.-4. sæti.
5. sæti, Ívar Atli Sigurjónsson, flugmaður og háskólanemi. Hann fékk 247 atkvæði í 1.-5. sæti.
Aðrir sem tóku þátt í prófkjörinu voru Linda Hrönn Þórisdóttir, leiðtogi innlendra verkefna hjá Barnaheillum – Save the Children á Íslandi, og Þórey Anna Matthíasdóttir ökuleiðsögumaður.