Fimm greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. Þetta kemur fram á Covid.is. Einn var utan sóttkvíar.
Þrír greindust á landamærunum. Einn var með virkt smit, annar með mótefni og sá þriðji bíður eftir niðurstöðu úr mótefnamælingu.
Samtals eru 100 í einangrun sem er fækkun um 30 frá því síðustu tölur voru birtar á síðunni fyrir helgi. Flestir eru í einangrun á höfuðborgarsvæðinu, eða 52, og næstflestir á Suðurlandi, eða 32.
Tveir liggja á sjúkrahúsi með Covid-19, sem er fækkun um þrjá. Alls hafa 55 í heildina verið lagðir inn á gjörgæslu vegna kórónuveirunnar og er það fjölgun um einn frá því fyrir helgi.
Tekin voru 1.604 sýni.
269 eru í sóttkví, sem er fjölgun um 21 frá því fyrir helgi. Þar af eru