Sá sem greindist utan sóttkvíar í gær tengist ekki fyrri hópsýkingum. Hann var tiltölulega nýkominn til landsins og gæti hafa sloppið í gegnum kerfið á landamærunum.
Skoða þarf málið aðeins betur.
Þetta sagði Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir á upplýsingafundi almannavarna.
Hann sagði annars að smitum á landamærunum hafi fækkað nokkuð að undanförnu og nefndi að þær aðgerðir sem gripið hefur verið til hefðu væntanlega hjálpað þar til.